Þjónusta
Hjá KvikkFix færðu fljóta og góða þjónustu fyrir bílinn. Þú sest inn í “Gallerí KvikkFix” í betri stofunni á meðan við dekrum við bílinn. Færð þér rjúkandi kaffisopa og vöflu með sultu og rjóma meðan þú skoðar listaverkin, horfir á íslenska bíómynd á stóra skjánum, eða kíkir á internetið í tölvuverinu. Flettir í gegnum blöðin eða leyfir þér að gera bara ekki neitt. Þú getur líka skilið bílinn eftir og sótt hann síðar, nú eða við sótt hann til þín og komið honum til þín aftur að verki loknu. Bara alveg eins og þú vilt.
Við bjóðum…
Olíu og síuskipti.
Ný dekk. Sumar- vetrar- og heilsársdekk. Umfelganir, jafnvægisstillingar, viðgerðir og neglingar.
Rafgeymar – allar gerðir, ísetning á staðnum.
Perur – allar gerðir, Halogen, Xenon, Ultra Blue og HID.
Rúðuþurrkur – allar gerðir. Hefðbundin og flatblöð.
Bremsur – klossar, diskar, borðar, dælur og viðgerðarsett.
Púst í flestar gerðir bíla. Einnig sérsmíði með fullkomnum vélum.
Kúplingar í flestar gerðir bíla. Diskar, pressur og legur.
Dempara í flestar gerðir bíla.
Svo geturðu líka fengið Autoglym heimsins bestu bílasnyrtivörur hjá okkur.
Gæðavottanir
Nokkrir þekktustu bíla og vélaframleiðendur heims staðfesta með undirskrift sinni gæði EUROL olíunnar. Okkur er óhætt að treysta þeim.
Cummins CES 20077 Eurol Fusion 10W-40 (pdf)
Cummins CES 20078 Eurol Fusion 10W-40 (pdf)
MAN Eurol Syntruck UHPD 10W-40 (pdf)
MAN Eurol Marathol 10W-40 (pdf)
Mercedes Benz Fluence 5W30 SL-CF (pdf)
Mercedes Benz Turbosyn 10W-40 SL-CF (pdf)
Renault RN0720 Actence 5W-30 (pdf)
Renault RN07000710 SuperLite 5W40 (pdf)
Scania LDF – Eurol Syntrax 5W30 (pdf)
Scania LDF-2 Eurol Endurance LD 10W-40 (pdf)
VW Super Lite 5W-40 (502-505)-2 (pdf)