Staðsetning
Kársnesið er á miðju höfuðborgarsvæðinu í alfaraleið. Ekið er beina leið í vestur eftir Kársnesinu út Vesturvör. KvikkFix er nr. 30c.
Þegar komið er úr austurbæ Reykjavíkur er ekið eftir Nýbýlavegi fram hjá Toyota og undir brúna yfir Kringlumýrarbraut/Hafnarfjarðarveg og áfram þar til gatan verður að Vesturvör.
Frá miðbæ Reykjavíkur er ekið eftir Kringlumýrarbraut í suður í átt að Hafnarfirði. Á Kópavogsbrúnni er beygt til hægri í vesturbæ Kópavogs og eftir Nýbýlavegi út Kársnesið. Einnig má fara upp á brúna og aka Borgarholtsbraut vestur Kársnesið.
Þegar komið er að sunnan frá Hafnarfirði og Garðabæ skal ekið undir brúna við Hamraborg og beygt til hægri í átt að Toyota. Farið um hringtorgið og beint út Kársnesið eftir Nýbýlavegi/Kársnesbraut og Vesturvör.
Kort:

Kort af staðsetningu